Matarsódamaski

Með því að blanda saman matarsóda og vatni, þannig að úr verði krem er hægt að búa til góðan hreinsimaska fyrir bólótta húð.

Þú blandar maskann saman, makar honum framan í þig (eða á vandamálasvæðið) – passa sig þó að vera mjúkhenntur því að maskinn er mjög grófur, og bíður svo þangað til að hann er þornaður. Þegar maskinn er þornaður þá er hann þveginn vandlega í burtu með vatni – aftur muna að vera mjúkhenntur því að maskinn er mjög grófur.

Þetta er frekar subbulegur maski, þegar maður er að bera hann framan í sig þá á hann til að miljast niður, en mér finnst hann hreinsa mjög vel.

Ein athugasemd »

  1. Dodda said

    mér fannst ekkert subbó að setja þetta á mig, en þegar þetta var farið að þorna þá ráðlegg ég þeim sem nota þetta að tala ekki og hrifa sig takmarkað mikið.. ég rölti um eins og snjómaðurinn sem var að molna í sundur:S

RSS feed for comments on this post · TrackBack URI

Færðu inn athugasemd